NÝ BÓKUNARLEIÐ - Svona bókar þú á netinu: |
|---|
|
Skref 1. Smelltu á dagsetningu í dagatali Í bókunarvélinni velur þú tegund ferðar, áfangastað og fjölda farþega - fullorðna, börn og ungabörn. Næst smellir þú á daginn í dagatalinu sem þú vilt ferðast á: Skref 2. Þar velur þú dagsetningar og ýtir á "Áfram" hnappinn til að velja gistingu. Skref 3. Í þessu skrefi sérð þú þá gistivalmöguleika sem eru í boði og getur fengið nánari upplýsingar um þá. Einnig sérðu verð á mann miðað við flug og gistingu. Næst velur þú þá gistingu sem þú vilt bóka og smellir á "Bóka" hnappinn. Skref 4. Nú birtist ferðatilhögun þín og gjöld fyrir alla farþega. Smelltu á "Áfram" neðst í skjalinu til þess að halda áfram. Skref 5. Á þessari síðu setur þú inn nöfn farþega, heimilisfang, símanúmer, netfang og fæðingardag fyrir börn og eða ungabörn (og gætið þess að nafn farþega sé ritað á sama hátt og í vegabréfi). Neðst á síðunni sérð þú ferðaskilmála. Þegar búið er að slá inn allar upplýsingar og samþykkja ferðaskilmála smellir þú á "Bóka núna". Skref 6. Hér sérðu heildarverð fyrir alla farþega. Hér þarf að slá inn greiðslukortaupplýsingar fyrir ferðinni. Til að ljúka bókuninni smelltu þá á "Staðfesta ferð". Skref 7. Hér birtist staðfesting á bókun þinni. Bókunarnúmerið birtist efst í hægra horni. Reikningur er sendur í tölvupósti á það netfang sem þú gafst upp við bókun. E-miðar verða svo sendir til þín í tölvupósti u.þ.b. 10 dögum fyrir brottför. |